Gleðilegt Sumar!
Jæja, þá er sumar komið og prófin byrjuð. Um helgina er spáð hitabylgju, allt að 18 stiga hita!
Fékk loksins iPodinn minn aftur í gær, eða nýjann. Ég setti minn í viðgerð 10. mars vegna þess að skjárinn var ónýtur og það kviknaði ekki á honum. mér var farið að leiðast biðin svo ég bað mömmu um að hringja, þar sem hún er betri í að rífa kjaft en ég. Og svo í gær gat ég loksins farið og fengið nýjann. Hann er ekki eins rispaður og minn, svo ég þarf að kaupa mér hlíf svo sá nýji rispist ekki.
Veit ekki hvað ég á að segja meir þar sem ég er í tölvubanni og má ekki vera í tölvunni, þó ég stelist smá... þannig að ég ætti að fara að læra.
Ekki brenna í sólinni í dag!
Gleðilega páska!
Jæja, eru ekki allir í góðum fíling? Borðandi páskaegg og svoleiðis? Ég fékk Nóa egg nr. 4 en enni ekki að hlaupa inní stofu til að finna málsháttinn, hann verður að koma seinna.
Ýmislegt hefur gerst síðustu vikurnar, t.d fékk ég loksins fataskáp! Svo núna vantar mig bara nokkrar hurðir (á skápanna og inní herbergið), ljóskrónu og gólflista, og þá er herbergið mitt tilbúið! Get ekki beðið, setti inn myndir á myndasíðuna mína, sérstaklega fyrir Ástraíufarann minn ;)
Það sem gerðist líka var að ég og Fjóla pöntuðum flug til London, bara við 2, í London, í 4 nætur! Úff, það verður villt. okkur hlakkar svo til að það er ekki fyndið! Af hverju er ekki komið sumar?
Glænýjar myndir af herberginu mínu og Týru og Cleo the Cat komnar inná http://heidan.myphotoalbum.com!
Lifið heil og ekki borða yfir ykkur, það er miklu erfiðara að læra þannig!
Ný byrjun
OK, ég er hætt þessu blessaða flakki. Ef ég hætti að blogga hér, þá er ég hætt að blogga, alfarið. Nú þarf bara eitthvað að fara að gerast svo ég geti farið að blogga.
Veikindi eru fyrir aumingja, ég neita að fá flensuna!